Papers by Kolbeinn Rastrick

Í þessari ritgerð eru tíu kvikmyndirsem varðveittar eru á Kvikmyndasafni Íslands teknar fyrir. Þæ... more Í þessari ritgerð eru tíu kvikmyndirsem varðveittar eru á Kvikmyndasafni Íslands teknar fyrir. Þær eiga það sameiginlegt að sýna óeirðirnarsem áttu sér stað þann 30. mars 1949 vegna fyrirhugaðar inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið. Gerð er grein fyrir hugmyndafræðilegum bakgrunni bandalagsins og hvernig skoðanir bæði andstæðinga þess og stuðningsmanna birtust í dagblöðum landsins. Sýnt er hvernig ólík sýn á aðild að bandalaginu markar viðbrögð þessara tveggja fylkinga við óeirðunum sem áttu sér stað á Austurvelli og smitar túlkun áhorfenda á kvikmyndunum. Myndirnar sem teknar voru af atburðinum eru greindar með hliðsjón af hugmyndafræðilegum bakgrunni þeirra sem þær gerðu sem og þeirra sem á þær horfðu. Því er haldið fram að sama hvað kvikmyndirnar sýna í reynd, lék pólitísk sýn og hugmyndafræði þessara aðila veigamikið hlutverk í viðtökunum. Í greiningunni er stuðst við kenningar kvikmyndafræðingsins Bill Nichols, menningarfræðingsins Stuart Hall og listgagnrýnandans John Berger til þess að sýna fram á kvikmynd, jafnvel sú sem ætlað er að miðla sjónrænt raunverulegum atburðum, er jafnan háð hugmyndafræði bæði höfundar og áhorfenda.
Birtingarmyndir karlmennskuhugmynda í kvikmyndunum The Swimmer, Easy Rider og Dirty Harry í samba... more Birtingarmyndir karlmennskuhugmynda í kvikmyndunum The Swimmer, Easy Rider og Dirty Harry í sambandi við gagnmenningar hugmyndir sjöunda áratugsins.
Birtingarmynd og notkun líkamans í kvikmyndunum Microwave Massacre, Wet Wilderness og The Slumber... more Birtingarmynd og notkun líkamans í kvikmyndunum Microwave Massacre, Wet Wilderness og The Slumber Party Massacre
Uploads
Papers by Kolbeinn Rastrick